FORNÁM - Alhliða undirbúningur fyrir nám í hönnun og listum á æðra skólastigi
FORNÁMSDEILD
Myndlistaskólinn á Akureyri býður upp á hnitmiðað 39 eininga heildstætt nám í sjónlistum veturinn 2011-2012. Námið er skipulagt með hliðsjón af aðalnámskrá framhaldsskóla og í því felst listrænn og tæknilegur undirbúningur fyrir framhaldsnám á sviði myndlistar, hönnunar og arkitektúrs.
Umsókn um skólavist þarf að berast skólanum fyrir 3. júní nk. ásamt umbeðnum gögnum og tilskyldum fjölda eigin myndverka. Sérstök inntökunefnd fjallar um umsóknir og ákvarðar um inntöku. Við inntöku er tekið tillit til fyrra náms og starfsreynslu. Auk þess eru innsend verk umsækjenda metin af inntökunefnd skólans. Miðað er við að umsækjandi hafi lokið a.m.k. 104 einingum í framhaldsskóla eða hliðstæðu námi sem inntökunefnd metur gilt.
Myndlistaskólinn á Akureyri er lítill en góður sjálfstæður skóli með sterkan prófíl sem reynir eftir föngum að laða til sín hæfileikaríka einstaklinga og skapa þeim skilyrði til að þroskast og ná árangri. Markmiðið er að mennta fagfólk með sterkan grunn sem tilbúið er til að takast á við verkefni framtíðarinnar. Námið er einstaklingsmiðað og sveigjanlegt. Skólinn leggur áherslu á að fá sérfræðinga, gott fagfólk og snjalla myndlistamenn til að koma inn og vinna með nemendum að tilteknum verkefnum.
| Fornámsdeild - undirbúningur fyrir sérnám í sjónlistum | ||
| Fagurlistadeild - frjáls myndlist | ||
| Listhönnunardeild - grafísk hönnun og margmiðlun |
SÉRNÁM Starfsmenntun í myndlist og hönnun
FAGURLISTADEILD - frjáls myndlist
Nám í fagurlistadeild er fjölþætt, þriggja ára sérhæft nám sem veitir starfsmenntun í frjálsri myndlist. Nemendur fá nauðsynlega þjálfun og tilsögn sem gerir þá hæfari til að takast á við ólík viðfangsefni og fjölbreyttar aðferðir í listsköpun sinni.
LISTHÖNNUNARDEILD - grafísk hönnun
Í grafískri hönnun er lögð áhersla á tækniþekkingu og frumlega framsetningu hugmynda. Á þremur árum öðlast nemendur yfirgripsmikla þekkingu og þjálfun í faginu sem gerir þá hæfa til að fást við krefjandi verkefni á sviði hönnunar fyrir prentmiðla og margmiðlun.
Nemendur útskrifast að loknu þriggja ára námi í sérnámsdeildum með því að vinna lokaverkefni innan sérgreinarinnar og skrifa rannsóknarritgerð.
Með prófskírteini fylgir skrá um námsárangur nemenda allan skólaferilinn ásamt umsögn prófdómara um lokaverkefni.
Námseiningar: 180 ECTS
Umsókn um skólavist þarf að berast skólanum fyrir 3. júní nk. ásamt umbeðnum gögnum og tilskyldum fjölda eigin myndverka. Inntökunefnd áskilur sér rétt til að boða umsækjendur til viðtals dagana 3. til 7. júní, telji hún ástæðu til.
Myndlistaskólinn á Akureyri - Kaupvangsstræti 16 - Pósthólf 39 - 602 Akureyri
http://www.myndak.is/ - info@myndak.is
