(Unnið er að uppfærslu á síðunni!)
INNTAKA NÝNEMA SKÓLAÁRIÐ 2012-2013
FORNÁM Alhliða undirbúningur fyrir nám í hönnun og listum á æðra skólastigi
Myndlistaskólinn á Akureyri býður upp á hnitmiðað 72ja fein eininga heildstætt nám í sjónlistum. Námið er skipulagt með hliðsjón af aðalnámskrá framhaldsskóla og í því felst listrænn og tæknilegur undirbúningur fyrir framhaldsnám á sviði myndlistar, hönnunar og arkitektúrs.
Umsókn um skólavist þarf að berast skólanum fyrir 5. júní nk. ásamt umbeðnum gögnum og tilskyldum fjölda eigin myndverka. Inntökunefnd áskilur sér rétt til að boða umsækjendur til viðtals dagana 5. til 8. júní, telji hún ástæðu til.
SÉRNÁM Starfsmenntun í myndlist og grafískri hönnun, 180 ECTS
FAGURLISTADEILD - MYNDLIST
Nám í fagurlistadeild er fjölþætt, þriggja ára sérhæft nám sem veitir starfsmenntun í frjálsri myndlist.
LISTHÖNNUNARDEILD GRAFÍSK HÖNNUN
Á þremur árum öðlast nemendur yfirgripsmikla þekkingu og þjálfun í grafískri hönnun sem gerir þá hæfa til að fást við krefjandi verkefni á sviði hönnunar fyrir prentmiðla og margmiðlun.
Umsókn um skólavist þarf að berast skólanum fyrir 5. júní nk. ásamt umbeðnum gögnum og tilskyldum fjölda eigin myndverka. Inntökunefnd áskilur sér rétt til að boða umsækjendur til viðtals dagana 5. til 8. júní, telji hún ástæðu til.


Kaupvangsstræti 16 - Pósthólf 39 - 600 Akureyri - info@myndak.is - www.facebook.com/myndak - Sími.: 462 4958 - 898 5359